Icelandic(IS)English (United Kingdom)
image image image image image image image image image image
HTS-2000 HTS-2000 er varanlegt, tærist lítið og hægt að nota með hvaða logsuðutæki sem er eða gaslampa, fer eftir massa efnis. Þrisvar sinnum sterkara og sveigjanlegra en fyrsta kynslóð stanganna, og gengjuviðgerðir með þeim eru sterkari en upprunalegar gengjur.

Þessar álstangir er hægt að nota til að gera við vélar, rafala, flugvélar, vörubíla, dráttarvélar, mótorhjól, ál báta, kerrur, felgur, stiga, og hvað eina sem er úr áli.
Blokkarviðgerð Hér sést viðgerð á blokk sem hafði verið skorið í með slípirokk. Þegar um svo efnismikinn hlut er að ræða þarf að nota logsuðutæki og gæta þess að efnið fljóti vel án viðkomu við logann. Alveg eins og þegar er verið að tina (lóða)

Brotið eyra lagfært Auðvelt er að laga brotið eyra á hlutum úr áli. Bolti er settur í gatið með skinnum beggja vegna og svo er byrjað að hita álið þar til stöngin bráðnar á því. Fyllt að ósk og síðan látið kólna.

Að aðgerð lokinni er boltinn einfaldlega tekinn úr. Eyrað verður sterkara en upprunalegt og myndi brotna innan við nýja hlutann ef svo illa færi.
Brotið eyra endurnýjað Auðvelt er að byggja upp brotið eyra á hlutum úr áli. Það er búið til mót úr járni og svo er byrjað að hita álið þar til stöngin bráðnar á því. Mótið er fyllt að ósk og síðan látið kólna.

Að aðgerð lokinni er gat borað fyrir bolta og jafnvel snittað. Eyrað verður sterkara en upprunalegt og myndi brotna innan við nýja hlutann ef svo illa færi.
Felguviðgerð Viðgerðir á álfelgum eru auðveldar með HTS-2000 kveikistöngum. Þessi aðferð við viðgerð er fljótleg, auðveld og varanleg. Í náinni framtíð verður hægt að fá svipaðar stangir fyrir stálfelgur.

Strokkloksviðgerð HTS-2000 er varanlegt, tærist illa og hægt að nota með hvaða logsuðutæki sem er. Þrisvar sinnum sterkara og sveigjanlegra en fyrsta kynslóð stanganna, og gengjuviðgerðir með þeim eru sterkari en upprunalegar gengjur.
Þessar álstangir er hægt að nota til að gera við vélar, rafala, flugvélar, vörubíla, dráttarvélar, mótorhjól, ál báta, kerrur, felgur, stiga, og hvað eina sme er úr áli.
Álviðgerðir Þessi nýja tækni virkar vel ál. steypt ál, steypt efni, magnesium, og alla hvíta og holótta málma. Þú getur auðveldlega gert við tært eða olíumengað svæði sem er því sem næst ógerlegt að laga með suðuvélum og álsuðuvír eða öðrum vörum til kveikingar.
Sprunguviðgerð Margir kannast við sprungur í áli sem þarf að laga, t.d. álpönnu úr bíl.
Bara hreinsa sprunguna og jafnvel særa lítillega með slípirokk og svo er kveikt í hana með HTS-2000
Gengjuviðgerð Gengjuviðgerð er einföld með HTS-2000 kveikistöng. Einfaldlega hita efnið , fylla gatið með stönginni og setja þá heitan bolta af réttri stærð í. Þegar hluturinn er orðinn kaldur má skrúfa boltann úr. Eftir situr gat með gengjum sem eru sterkari en upprunalegu gengjurnar.

Sterkari gengjur Hver hefur ekki orðið fyrir því að eyðileggja gengjur í áli. Gengjuviðgerðir með þeim eru sterkari en upprunalegar gengjur og þú slítur frekar boltann en að eyðileggja gengjurnar aftur.
Fimmtudagur, 09. febrúar, 2012

Innskráning notanda