Einfaldar leiðbeiningar um notkun
Hreinsið svæðið með þjöl, slípirokk, eða vírbursta. Þessar annarar kynslóðar stangir þurfa ekki sérstakan bursta!
Hitið svæðið (ekki stöngina) þar til að svæðið er orðið nógu heitt til að bræða stöngina, alveg eins og þegar er verið að lóða. EKKI SETJA STÖNGINA Í LOGANN. Þú verður að ná hita í svæðið sem er meira en bræðslumark HTS—2000 stangarinnar. Það er að segja opna holur efnisins til að ná festu.
Fyrir gengjur og þunnt ál, strjúkið stönginni við svæðið þegar nægjanlegum hita er náð. Í öðrum tilfellum, notið burstann til að undirbúa svæðið með vírburstanum, til að fá bindilag af HTS—2000 efninu, þegar nægjanlegum hita hefur verið náð. Þá er hægt að fara að byggja upp.
Þegar viðgerð er lokið, leyfið því að kólna eðlilega. Própan gas virkar vel fyrir flest allt upp að 6-7 mm þykkt. Þykkara og massameira verður að nota öflugri tæki.
Athugið:
Munið að því þykkara og massameira efnið er, þá tekur lengri tíma að ná nægjanlegum hita. Í stærri verk (massameiri)eða til aðspara tíma þá má nota venjuleg logsuðutæki. Notið alltaf Rosebud spíss eða hlutlausan loga. Ekki setja HTS—2000 stöngina beint í logann, leyfa því að fljóta af efninu.